
21. apríl 2026
Eitt glæsilegasta nautahús landsins
Þegar ekið er að landeyjum liggja margar faldar perlur. Ein þeirra er bærinn Miðey en þar stunda þeir Hafsteinn Jónsson og Óskar Eyjólfsson mikla nautarækt.
Húsið er glæsilegt aðkomu, svart og stendur eins og höll með vestmannaeyjar í bakgrunni. Hafa orðið miklar rekstrarbreytingar eftir að Hafsteinn og Óskar hófu rekstur á Miðey en er búið að stækka við gripahúsið um rúmann helming, setja upp hátækni fóðrunarkerfi frá Lely og eru þeir með stæðsta mykjulón landsins sem er flutt inn af okkur hjá Eco-Garden.
Þegar gengið er inn í hús á Miðey verður maður var við nokkra hluti. Algera þögn í nautgripunum og samræmingu í öllu húsinu, enda var verið að klára að setja upp stórglæsilegar innréttingar frá Teemore Engineering inn í allt húsið.
Hönnunin var unnin af okkur hjá Eco-Garden í samvinnu við bændurna á Miðey og var haft að leiðarljósi flæði gripa, sveigjanleiki í stíum og vinnuöryggi bændanna.
Fyrir valinu varð 2 bar feed rail frá Teemore með sérhönnuðum festingum svo hægt væri að stilla átgrindurnar þannig að bæði eldri og yngri gripir gætu verið í stíunum.
Milligerðin eru 5Bar access arch end með drink back valmöguleikanum. Gerir þetta okkur kleift að vernda drykkjaskálarnar á 2 vegur frá hnjaski nautgripanna. Því einnig var sett upp verndarhlíf í kringum drykkjaskálarnar.
“Hönnun hússins býður ekki upp á rekstrarganga og er því sérlega gott að geta fært gripina á milli stía með þessum milligerðum, rennslið er alveg sérlega gott”.
“Gripirnir virða innréttingarnar og sér ekki á þeim þrátt fyrir að tekið hafi verið á þeim”
Lausnir sem endast og skila vinnuhagræðingu og hagkvæmni til kúnnana okkar eru okkur sérlega mikilvæg og óskum við bændunum á Miðey sérlega til hamingju með þetta glæsilega hús og þökkum einnig traustið sem var sett á okkur fyrir svona stóru verkefni.