Sjálfvirkni og gæði í forgrunni hjá Friðheimum

29. apríl 2026

Sjálfvirkni og gæði í forgrunni hjá Friðheimum

Facebook færsla

Ef færslan birtist ekki, athugaðu að hún sé public á Facebook

Sjálfvirkni og gæði í forgrunni hjá Friðheimum

Á Friðheimum, þar sem Íslensk gróðurhúsarækt hefur lengi verið í fararbroddi, hefur ný fjárfesting markað tímamót í vinnslu og pökkun tómata. Með aukinni áherslu á gæði, rekjanleika og skilvirkni hefur verið tekin í notkun ný og fullkomin pökkunarlína fyrir vinsælu Piccolo-tómatana.

Um er að ræða alsjálfvirka lausn frá Koppert, sem Eco-Garden flutti inn og setti upp. Lausnin er hluti af markvissri uppbyggingu þar sem tæknin styður við það sem fyrir er – sterka framleiðslu og skýra sýn á gæði.

Að sögn Knúts eiganda Friðheima, var undirbúningur verkefnisins vandaður og horft til bestu lausna erlendis:

„Við í Friðheimum fjárfestum í nýrri alsjálvirkri pökkunarlínu fyrir Piccolo tómatana.

Vélin er frá Koppert í Hollandi sem Eco-Garden flutti inn og seldi okkur.

Vélin bætir gæði pökkunar, eykur hraða, dags merkir hverja dós, límir á miða og sparar mannskap við pökkun.

Við vorum búin að skoða nokkrar útfærslur á vélum erlendis og undirbúa þetta vel með okkar teymi.

Þjónustan og utanumhald var allt til mikilla fyrirmyndar sem og uppsetning og eftirfylgni.“

Með þessari fjárfestingu er ekki aðeins verið að auka afköst heldur einnig að styrkja rekjanleika og samræmi í framleiðslunni. Sjálfvirk dagsetningamerking og nákvæm pökkun tryggja að varan skili sér til neytenda í stöðluðum og áreiðanlegum gæðum.

Við hjá Eco-Garden óskum Knúti og fjölskyldu innilega til hamingju með nýju vélina og þökkum fyrir traustið sem okkur var veitt til að sjá um þetta mikilvæga verk.

Friðheimar halda þannig áfram að þróa starfsemi sína með skýra framtíðarsýn – þar sem tækni og landbúnaður fara saman í þágu gæða og sjálfbærni.

Myndir